Little Miss Purple
Klukkan
Myndasíðan mín
Skilda fyrir allar könur í heiminum að lesa:)
31.12.2006 14:35:16 / Unnur

Jájá,,,, bara verið að blogga aftur

Nei, blessuð Ég hef bara ekkert að gera í augnarblikinu og ákvað því að blogga aðeins:)

 Ég var að skoða myndir af frænku minni á síðuni hennar... og omg... hvað hún og allar vinkonur hennar eru miklar gellur og bara... ja... 16 ára gamlar... hmm... okay, en nóg um það.

Ég var að baka köku... Taldi mig vera mjög góða í því að baka þar sem að ég er nú með það í blóðinu... Pabbi menntaður bakari og Viggó frændi menntaður bakari sem átti sitt eigið bakari... Mamma alltaf að fá hrós fyrir góðar kökur.. en svo kem ég... já neinei... Ég gerði Djöflatertu... Gekk rosalega vel... þangað til að það átti að fara setja kremið á kökuna... já... kremið var svo þykkt að það var bara eins og steypa.... og kakan brotnaði að mestu leyti þegar það var reynt að setja þetta blessaða steypukrem á greyið kökuna... meira að segja með hjálp frá henni mömmu... Ég í alvöru var næstum farin að gráta (er algjör vælukjói) en svo mundi ég það á meðan að ég var að sleikja steypikremsskálina að það er nú alveg hægt að borða kökuna þótt að hún sé ljót... Og það eru skilaboð dagsins að útlitið skiptir ekki öllu máli:)

En já... fyrir þá sem ekki eru alveg með dagana á hreinu þá er gamlárskvöld í kvöld:) Hvað er planið hjá ykkur?

 Við hérna í DK ætlum nú að byrja á því að borða nautalund (MMMMMM) og svo verður The DEVIL CAKE eftir það, ef einhver leggur í hana... og svo erum við mamma búnar að taka 3 myndir á dvd.... þannig að þetta verður nú bara frekar rólegt kvöld í kvöld... en ekki halda það að það verði ekki drukkið!!! ÉG meina... ég er nú einusinni í landi bjórsins:)

En ég er líka bara sátt með þetta plan þar sem að ég er nú alls ekki mikið fyrir það að skjóta upp flugveldum... lenti í því þegar ég var 8 ára að fá leyfar að flugvelda sem var ennþá glóð í í snjógallann minn og það kveiknaði í honum... þar að segja það kveiknaði í mér... Það eina sem ég hef að segja... thank god for my mother and her eyes, þar sem að hún var ekki lengi að slökkva í "eldinum". En já, núna vitið þið aðeins meira um mig:) hehe, en já, ég er að pæla að hætta þessu rugli og hmm... fara að gera eitthvað. Ég segi bara takk fyrir allt á liðnu ári og ég vona að þið eigið öll frábært ár í vændum og skemmtið ykkur sem best í kvöld:)

Nýárskveðja frá Unni Björk:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.12.2006 21:53:04 / Unnur

Hmmm... já, ég held að það sé bara komin tími fyrir blogg... Aftur frá Danaveldinu:)

Hmm... já bara góða kvöldið.

Hmm... ég er ekki búin að blogga síðan að ég var í Danmörku síðast þannig að ég held að það sé bara komin tími fyrir blogg þar sem að ég er komin aftur til Danmerkur:) Hmm.. já, núna eru jólin bara búin (thank god)... Ef að jólin eru ekki tími stressins þá veit ég ekki hvað... Það eru allir svo crazy eitthvað að það hálfa væri svo mikið meira en nóg. Ég keypti mína síðust jólagjöf 23 des kl. hálf 6. Ég skal samt viðurkenna að ég var orðin pínu stressuð þá. Enda loka búðirnar hérna kl. 6. Ekki eins og heima þegar þær loka kl. 11 23 des.

En ég er að pæla að segja ykkur aðeins frá því sem að ég fékk í jólagjöf:

Ég fékk Armani ilmvatnið og leðurjakka frá elskunni minni honum Davíð

Ég fékk peysu og annan leðurjakka frá mömmu og Leif

Ég fékk flottar myndir úr IKEA og Paris Hilton ilmvatn frá pabba og litla bróa

Ég fékk flotta fjólubláa tösku og bók um Marilyn Monroe frá Petu systir og krökkunum hans Leifs

Svo fékk ég geggjaða skartgripi frá Sigrúnu systir

Ég fékk líka flottan bol frá fjöldskyldunni hans Davíðs

Svo fékk ég pening, flösku með brjóstsykri sem á að setja vodka út í þá verður þetta að svona lakkrís skoti. Svo fékk ég líka geggjað flott hálsmen og já... ég man ekki meira...

Hmm.. annars er bara allt gott að frétta af mér. Er ennþá að vinna á leikskólanum Hálsaborg og fíla það í tæltur. Ég er búin að fá að taka fleiri börn í aðlögun og svona, sem er misskemmtilegt... En ég var nú svo leið daginn áður en að ég fór út.. Ég frétti það að uppáhaldsstelpan mín hún Arína Bára (fyrsta barnið sem ég tók í aðlögun og bara litla ástin mín) er að fara skipta um deild... Ég skal viðurkenna það að ég fór að gráta eins og hið mesta pussy. Dagbjört deildarstjóri skildi mig samt alveg og sagði að ég mætti taka eins langan tíma til að jafna mig... Það eru ekki margir sem skilja mig þegar ég segi þeim frá þessu en ég á engin börn og hún er barnið mitt frá 9-5... þegar henni var sagt að ég væri að fara í flugvélina þá sagði hún Arína líka... hún var semdagt að fara koma með mér... Æji hún er bara svo sæt. :) Á eftir að sakna hennar alveg ótrúlega... En já, ég er búin að tjá mig um þetta mál. En allavegana ég er að pæla að hafa þetta bara svona í bili. Ég kannski reyni að blogga pínu meira á meðan að ég er hérna úti. :)

Ég vona bara að allir hafi haft æðisleg jól og fái vonandi farsælt komandi ár:)

Jólakveðja frá DK

Unnur


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 20:58:37 / Unnur

Já, ég held að það sé komin tími fyrir blogg frá Danaveldi:)

Jájá, svona er lífið:)

Ég var að fá alveg frábærar fréttir áðan!!! Ég var að tala við hana Dísu mína og viti menn, þá er hún að koma til Íslands á miðvikudaginn, eftir dvöl í Suður-Ameríku síðan í janúar!!! pælið í þessu:) Ég hlakka ekki smá til að sjá elskuna mína, enda er ég búin að sakna hennar geiðveikt mikið!!

En já, ég er nú búin að vera vel löt að blogga núna, ég er bara ekki alveg búin að vera í stuði til að blogga þegar það er um 25 stiga hiti úti alla daga, þá held ég að það sé nú aðeins betra að vera úti og reyna að verða brún, sem að mér finnst ekki vera ganga alveg nógu vel, þar sem að ég fæ bara því miður frekknur og verð bara pínu brún í svona klukkutíma!!! Svona er þetta fyrir þá sem eru eitthvað tengdir rauðhærðu fólki og í mínu tilfelli þá er það hún mamma sem er með rauða "genið" í sér:) En já, ég er að pæla að segja ykkur frá því sem að ég er búin að vera gera síðan að ég kom hingað út:

Ég kom út til Danmerkur í þetta æðislega veður og byrjaði strax næsta dag á því að fara með mömmu til Esbjerg sem er mjög góður verlunarbær svona 40 mín frá Brörup þar sem að mamma býr. Mig minnir það að daginn eftir þá fórum við til Þýskalands að kaupa gos og bjór og náttúrulega Tequila fyrir mig:) haha:) Og síðan þá er ég búin að fara til Deutchland 2 sinnum, sem sagt í allt 3 sinnum, sem er alveg nóg í bili:) Svo fórum við mamma að versla aðeins meira og já, svo fórum við í bíó á Pirates of the Carribien - Dead mans Chest sem var bara mjög góð:) Og ég kommst að því enn og aftur hvað danir eru spes:) Það var nú ekki mikið af fólki í salnum og ég og mamma sátum einar í einni röð, svo kemur ungur strákur um 25 ára og set við hliðina á mér... ekki nokkur sæti á milli eða neitt, heldur við hliðina á... En allavegana þá segir hann; "Nei, ég sit bara við hliðina á sætustu stelpunum í röðinni" og ég leit á hann og sagði, já, það sitja einmitt svo margir í röðinni:) Þá sagði hann; "Oh, damn it, þú fattaðir þetta" hehehe, vitleysingur. Svo náttúrulega var hann einn af þeim sem hlær að öllu, þótt að það sé ekkert sérstaklega fyndið og ég átti svo erfitt með mig, þar sem að hann var með frekar fyndin hlátur. En allavegana, alltaf nice að fá að vita að maður sé sæt:) hehe. Svo var það náttúrulega uppáhaldið mitt sem lék í þessari mynd:)

 

 

                       

Já, svo fórum við mamma og Lotta vinkona mömmu og systir hennar Lottu til Köben um daginn bara í einn dag og ég held að við hefðum ekki geta valið "verri" dag því að þann dag var slegið hitamet síðan 1975, hitinn fór semsagt upp í 36 gráður, og já, það var mjög heitt og í Danmörku þá er líka svo rakt..., ekki skemmtilegt. En já, við fórum snemma um morguninn með lestini frá Brörup... þetta gekk vel, nema það að við fenguð miða í hvíleplads, eða svona "hvíldar" sæti, þar sem það er bannað að tala.. um leið og við komum inn og vorum að koma okkur fyrir þá var kona sem ussaði á okkur... Svo stuttu seinna var einhver sem var með gsm, sem er by the way líka bannað í þessum vagni og síminn fór að hringja, og strax leit þessi kelling á mig og var alveg tilbúin að ussa á mig... HALLÓ, ég er ekki einusinni með símann minn hérna úti!! Ég bara beið eftir því að hún mundi ussa á mig einusinni enn, því að ég var svo tilbúin að segja henni að halda kjafti og hætta að lesa blaðið sitt svona hátt!! hehe, geggjað bitur... :( hehe. En já, þetta var bara mjög góður dagur í Köben þrátt fyrir mikinn hita:) Ég keypti mér meðal annars: Stígvél, 3 buxur, fullt af nærfötum og já, slatta meira:) En svo á leiðinni heim þá var líka vesen með lestina... við fengum aftur svona "hvíldar" pláss og ekki nóg með það, það var ekkert aircondicion í vagninum okkar... .það var svo heitt að það var ekki fyndið. Mamma fór fram og sat þar sem að það var aðeins kaldara og stuttu seinna fóru Lotta og systir hennar líka þar sem að svitinn var farin að leka af þeim... Og hvað gerðí ég? það þurfti náttúrulega einhver að passa allt fucking dótið... þannig að þarna sat ég að borða besta ís í heimi... Vel sátt í svitabaði hehehe.

En já, þetta er bara búið að vera æðislegt frí fyrir utan allar þessar fucking HROSSAFLUGUR!!!!!! OMG, ég get ekki talið hvað það eru búnar að vera margar hrossaflugur inni hjá mér og liggur við bara inni hjá mér.... ég hata hrossaflugur og hræðsla mín fór nú aðeins út í ofgar um daginn, þar sem að ég komst að því þegar mamma var farin að sofa að það væri hrossafluga inni hjá mér... ég fór fram og náði í flugnaspaðann... ekki veit ég til hvers þar sem að ég get ekki einusinni drepið þær í hræðslu um að þær ráðist á mig eða eitthvað... (yes í know... im stupid) en já, ég fór og reyndi að kalla á mömmu, en ekki vaknaði hún og ég líka vissi það að hún yrði ekki sátt að ég skildi hafa vakið hana bara til þess að drepa flugu... þannig að ég tók sængina og fór inn í stofu og svaf þar.... Hversu stupid er ég? Hmm? En ég meina, þessi hrossafluga var nú bara eins og hestur í stærð.... Ég vei, ég er skræfa dauðans.... ekki kommenta á þetta!!! takk fyrir!

En já, svo fórum við í Lególand áðan... og ég skil ekki alveg hvað á að vera svona skemmtilegt við þetta þar sem að mér fannst þetta nú bara ekkert spennandi... hmm

               

En já, það styttist í heimkomuna... ég hlakka auðvita alveg til að koma heim, en það er alltaf svo gott að vera hjá mömmu:) En ég held að þetta sé bara gott í bili:)

Kv. Unnur

                           

Ohh hvað ég elska fjólublátt og Keira greinilega líka:) Og ég elska líka flotta dani eins og hann Oliver Bjerrehuus:)

                           

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 23:34:46 / Unnur

Hmm... Blogg, jájá

Já, ég er bara að pæla að blogga smá svona til að breyta aðeins til:)

Hmm, hvað get ég sagt merkilegt... hvað er ég búin að vera gera? Sko, ég er búin að vera vinna... vinna aðeins meira og svo já, vinna pínu meira... svo um helgar þá er ég búin að gera það að sofa út sem að allir vita er mikið gott og svo er ég búin að djamma mikið:) Sérstaklega með henni Ingu minni sem er ávallt til í djamm, svo er Björg nú búin að bætast í hópin þegar hún veit af okkur Ingu í bænum, þá er hún ekki lengi að joina okkur sem er bara gott þar sem að Björg er mjög mikið fyrir að dansa eins og ég og já, það er bara gaman gaman, ekkert meira um það. Svo er jú alltaf gaman að hitta systurnar sem vinna á Hressó og gera ekki annað en að dansa uppá borðum þegar þær eru ekki að vinna:) Ég er auðvita að tala um Söndru og Selmu:) Alltaf gaman að hitta þær og fyrir þá sem ekki vita, þá var ég að vinna með þessum glæsilegu systrum í Smárabíó í den tíd:) Svo er ég eiginlega ekki búin að vera gera mikið... jú, ég og Inga fórum í ræktina í fyrsta skipti síðan að ég keypti kortið, en það var reyndar bara opnað í júlí, þannig að ég er bara dugleg:)

Svo náttúrulega styttist í það að ég fari til mömmu skvís, sem að ég hlakka svo mikið til að sjá, enda sé ég hana bara 2 á ári... Sakna hennar samt ávallt:) Og Petu litlu systir, sem að ég er hrædd um að sé að fara ná mér í hæð þótt að hún sem bara 9 ára.... og ekki það að ég sá lágvaxin... er 177 á hæð.... hmm... En já, ég er að pæla að hafa þetta gott í bili, en ég vill bæta smá inn... Hún Hjördís aka Suður-Ameriku fari er að fara koma heim!!!!!!!!!!!! Ótrúlegt en satt..... OMG HVAÐ ÉG HLAKKA TIL AÐ SJÁ HANA!!!! Djöfull verður almennilegt djamm á okkur Dísa mín þegar ég kem heim frá DK og please, vertu komin heim þá!!! Get ekki beðið mikið lengur!!!! :haha: Ohhh, hvað ég er spennt!!!! þetta verður æði, enda er ég ekki búin að sjá hana Alice (Hjördísi) mína síðan í des 2005:) Það eina sem að ég hef að bæta við er: DJAMMMMMMMMMMMM!!!! hehe:) Love u mi amiga, y te extrano mas que puedes saber!!!! :)

En já, svona í lokinn, þá vildi ég bara láta ykkur vita að það eru komnar fleiri myndir inn;) Ég er bara búin að vera dugleg:) heheh

Kv. Unnur

Ps. Ég vill bara segja að Figo og Ronaldo stóðu sig svo vel núna á HM... (helvítis frakkar) Að ég vill bara heiðra þeim með að skella inn mynd af þeim:) Figo bara að kenna Ronaldo flotta takta;) hehe


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.06.2006 21:01:38 / Unnur

Smá test:) hehe

1. Hver er ég?

 2. Hvar hittumst við fyrst og hvernig?

 3. Hvernig leist þér á mig þá?

4. Hvernig lýst þér á mig núna?

5. Lýstu mér í einu orði:

 6. Gefðu mér gælunafn, og segðu mér afhverju þú valdir það:

7. Hvað minnir þig á mig?

8. Hversu vel þekkir þú mig?

9. Hvar og hvenær sástu mig síðast?

10. Hvaða stjörnumerki er ég, eða hvenær á ég afmæli?

11. Hvað meikar bara sens fyrir mig og þig?

13. Hvað er uppáhaldssjónvarpsþátturinn minn?

14. En bíómynd?

15. Á ég systkin? Ef svo er, nafngreindu þau:

16. Á ég kærasta? Ef svo er, hver(jir) er það?

17. Trúi ég á Guð?

18. Hvernig myndir þú lýsa mér fyrir öðrum?

19. Tókstu eftir því að það vantar nr. 13?

 20. Ætlaru að láta þetta á þitt blogg svo ég geti skrifað um þig?

Hlakka til að sjá hvað fólk hefur að segja:)


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 01:21:09 / Unnur

She´s the man

Jáhá, þið segið það:)

Ég ætla nú bara að segja ykkur frá því að ég er búin að setja inn myndir frá djamminu heima hjá Úlfi 3 júní:) Loksins loksins! hehe. En þetta tók nú líka sinn tíma:) En bara, skoðið þær:) Skemmtilegar myndir;)

En já, áðan þá fór ég í bíó með Þórunni á myndina She´s the man og viti menn, hún var bara svo ógeðslega fyndin að það er bara ekki fyndið;) hehe, ég sá líka afhverju það var sem að mér finnst fótboltagaurar svo hot, því að aðalgaurinn í þessari mynd var nú alls ekki ómyndarlegur!! Það er hann sem að stendur þarna í miðjuni:) Hann heiti Channig Tatum:)

En já, það var mikið slefað, og með þeim orðum kemur önnur mynd:)

Ekki ílla vaxinn þessi:) Var ég búin að segja það að ég elska fótbolta gaura? Hmm, og með þeim orðum þá kemur mynd af idolinu:) hehe

Alls ekki slæmur:) hehe og bíddu bíddu, hver er það sem á svona flottan bol frá Portugal? hmm og meira að segja nr. 7? ha? er það ég? Ohh já:) hehe:) Nei, okay, ég er hætt þar sem að flestir hata Figo, þar á meðal Gísli, hann bara skilur ekki að þetta er sönn ást á milli mín og Figo:) hehe. Hmm... Eitthvað meira sem ég get sagt? Hmm, já ég er búin að kaupa flugmiðann til DK. Thank god!!! Ég fer 12 júlí og kem heim 28 júlí. Og ég flý frá Reykjavíkur flugvelli, þannig að ég vill eiga von á öllum þar með skilti sem bjóða mig velkomna heim þann 28 júlí kl. 14:15!!! hehe:)  Og svo var ég að fá myndirnar úr stúdentamyndatökuni og þær eru bara svo flottar að ég gæti ekki verið sáttari:) Ég segi bara takk fyrir Pétur;) En ég bara kveð að sinni:)

Kv. Unnur Björk


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 18:47:16 / Unnur

Tími fyrir blogg eða hvað?

já... hmm, ég er nú ekki búin að vera neitt mjög dugleg að blogga undanfarið... en ég er bara ekki búin að vera gera neitt merkilegt...:S Hmm, ég er bara búin að vera vinna á fullu.. sem er bara mjög fínt, í gær þá fórum við í sveitarferð á Grjóteyri með krakkana og það var svo gaman, ég held að mér hafi fundist þetta skemmtilegra en flestum krökkunum, enda voru svo sætir kettlingar og hvolpar þarna og svo var náttúrulega lang sætastur kálfurinn sem var alltaf að renna á rassinum þegar hann hljóp aðeins of hratt. Svo sætt! Svo borðuðum við bara þarna og það var bara fínt, svo sofnaði mín bara í rútunni:) hehe, maður er alltaf svo hress í vinnuni;) Svo var ég bara í fríi eftir hádegi þar sem að ég var að fara í lungnamydatöku aftur þar sem að ég er komin með hóstann aftur... en það var allt í lagi þannig að ég á bara að halda áfram að taka pústið mitt.. :!: Svo vildi læknirinn nú samt taka blóðprufu til að vera viss um að allt væri í lagi og þá var ég nú á leiðinni út þar sem að ég er með mestu nálafóbíu í heimi og var farin að svitna þegar hann loksins kom aftur með þessa sprautu og þá vildi hann bara að fá að stinga í puttann, en samt var ég nú ekkert sátt og leit á hann eins og hann væri the devil og svo stakk þetta kvikindi mig og hann leit á mig, voðalega saklaus og sagði, allt í lagi? ég alveg bara jájá, þá sagði hann, ertu alveg viss, ert frekar föl... en ég er svo mikill massi að ég sagði bara neinei8) þannig endar sú saga og ég er búin að ákveða mig að tala aldrei við þennan læknir aftur þar sem að mér er enn íllt í puttanum! :whut:

Heyrðu, já svo um daginn þá var LOKSINS LOKSINS þetta djamm okkar Gísla og Úlfs, enda tími til kominn! En það var búið að bætast fullt af fólki við og við byrjuðum á því að fara út að borða á Hereford sem var bara mjög fínt og svo fórum við heim til Úlfs þar sem partýið var. Mjög svo skemmtilegt, ég var nú bara hress á því eftir 6 bjóra, og ég náði nú ekki að drekka mikið af Tequilanu mínu þar sem að einhver drakk næstum heila fucking flösku!!! SKAMM! SKAMM sérstaklega þar sem að það voru 2 kútar af bjór þarna! En Gísli sagði að hann mundi gefa mér heila flösku ef að ég mundi klára það sem eftir væri í flöskuni í einum sopa!! HEHEHE; við skulum bara segja það að Gísli skuldar mér flösku af Tequila! hehe! 8) Svo var náttúrulega aðalgellan á staðnum hún Erna, en hún er 3 ára slanga frá the OC! ég var nú ekki mikið á því að halda á henni þegar ég var semí edrú ef eftir Tequilað þá vildi ég endilega halda á henni og ég mæli með því að fólk sem þorir ekki að gera þetta geri þetta bara því að það er æði!!! OMG! Hún er líka svo sæt! hehe8) Þið getið skoðað síðuna hennar sem Þói vinur Úlfs gerði fyrir hana;) hehe

http://www.myspace.com/snakur

En ég held að þetta sé bara gott í bili:) er að fara uppí Baðhús en ég ætla að reyna að setja myndir inn á eftir;) Tími til kominn í það líka;)

Kv. Unnur

Fall-Out-Boy-umv05.jpg


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 22:33:38 / Unnur

Jamm og jú

Já, svona er þetta:)

hvað er að frétta af mér á þessum skemmtilega fimmtudegi? Hmm, í dag var leikskólinn lokaður og einnig á morgun vegna þess að meirihluti starfsmannana er í Noregi í námsferð og kemur aftur á mánudaginn. Þannig að við hin fimm, Guðrún, Súsanna, Eva, Simmi og ég fórum að heimsækja tvo aðra leikskóla í dag og svo einn á morgun og eiguð að skila smá skýslu um okkar upplifun á þessu þar sem að leikskólastýran okkar er öll fyrir það að við eigum að sitja í hring og tjá okkur... :$ En við fimm skemmtum okkur svo vel í dag að það er ekki fyndið, fórum á American Style allt í boði vinnunar og bara gerðum ekkert annað en bara að grínast sem var náttúrulega bara mjög gaman. Svo verðum við bara mjög líklega snemma búin á morgun.  Ég verð nú bara að segja það að mér fannst mjög gaman að sjá svona aðra leikskóla, eins og til dæmis leikskólinn Reynisholt sem var opnaður í nóvember sérhæfir sig í jóga fyrir krakkana og einnig starfsfólk og það er mikið um svona snerti og nuddstundir. Allir krakkarnir í þessum leikskólum voru svo óvenjulega þæg að við erum komin að þeirri niðurstöðu að það eru bara óþekkir krakkar í Breiðholtinu, by the way Þórhildur, þá er ég að vinna á leikskólanum sem þú varst á þegar þú varst lítil:) hehe. Og þetta voru rosalega flottir leikskólar, nátturulega mikið yngri en Hálsaborg, þar sem ég er, enda er Hálsaborg 25 ára... 8| Svo var ég áðan að skoða á flass.net og fann þar skemmtilega mynd frá því um síðustu helgi þar sem ég hitti hana Ingu mína á 11- uni og Björgu vinkonu hennar. En talvan er með móral og vill ekki setja myndina inn... :whut: kannski ég bara setji inn svona blandaðar myndir á myndasíðuna mína... Hver veit:) En já, svo fór ég líka á B2.is og fann þar svolítið sem mér fannst svo fyndið!!! Endilega gerið þetta, ég hló mig máttlausa í smá tíma;)

http://b2.is/?sida=tengill&id=165373 - ég fékk til dæmis úr þessu:

The dirt says hot, the lable dildo og svo líka I liked the Unnur so much I bought the company:) 

Easy, Breezy, Beautiful

Unnur.

hehe, það voru geggjað margar svona fyndnar setningar!! en já gaman gaman... ég held bara að þetta sé fínt í bili:)

Kv. Unnur

  Ps. langar að setja inn myndir:)

Fyrirsætan Twiggy:)

Og Tilde vinkona frá DK:) Hún er að módelast þar:)
Og Tilde vinkona frá DK:) Hún er að módelast þar:)

» 8 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 21:40:28 / Unnur

Opið hús

halló halló everybody,

það var opið hús hjá okkur í vinnuni í dag. Opið hús er þegar foreldrar geta komið og skoðað leikskólann með börnunum og séð hvað þau eru búin að vera gera í t.d listakróknum (við búum til smá sýningu) og við hengjum upp myndir á vegginn bæði eftir börnin og myndir af börnunum. Svo geta líka "nýjir" foreldrar komið með börnin sem eru að fara byrja hjá okkur og svona aðeins sýna þeim leikskólann og svona. Þetta var bara mjög skemmtilegt. Gaman að hitta foreldrana í meira en 2 mín þegar þau koma að ná í börnin. Sæbjörn, þetta litla krútt var nú alveg ánægður að sjá mig þótt að það væri laugardagur og vildi ekkert vera hjá mömmu, hann vildi bara vera hjá mér:) Ekki skrýtið sagði ég við mömmu hans, við kúrum saman á hverjum degi:) hehe, í þeim skilningi að þegar hann vaknar þá á hann svo erfitt með að halda sér vakandi, þannig að ég held á honum og hann svona kúrir hjá mér, sem er æðislegasta tilfinning í heimi. Hann verður fullkominn kærasti, algjört krútt, kom í dag með beige litaðan veiðihatt og í vesti og með hendurnar í vösunum og labbaði um, hann elskar að kúra og er með frábært hár:) hehehe, verst að hann er 2004 árgerð... :S En já, eftir opna húsið þá fór ég í litun og klippingu og ég verð að segja að ég er bara mjög sátt:) Alltaf gaman að fá svona nýtt look!!! :haha: Ég lét klippa svolítið af því, það var svo slitið og svo litaði ég það bara vel brúnt, finnst það fara mér best:) En já, hmm, eitthvað meira sem ég get tjáð mig um... ??? Ég bara held að þetta sé fínt í bili:)

Kv. Unnur

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 18:56:02 / Unnur

Já, þú segir það...

Jájá, blessað verið fólkið...

Ég fékk nú bara hótun frá henni Hjördísi minni um það að ég ætti að drulla mér að blogga... Já, það er bara svo leiðinlegt að blogga þegar maður hefur ekkert að segja... Hmm, ég skal reyna að finna eitthvað fyrir ykkur. Ég er bara að vinna alla daga á leikskólanum, nema um helgar. Þetta er ennþá mjög fínt og ég læri meira og meira. Svo á laugardaginn núna 6 maí þá er opið hús hjá okkur þar sem að foreldrar koma með krakkana og skoða það sem þau eru búin að vera gera núna í vetur og svona. Voða gaman - ég er samt ekki alveg að falla fyrir þessu... :| Svo eftir það þá verður farið í Perluna á víkingasýninguna sem er þar núna og svo á að snæða eitthvað glæsilegt, en ég beila á þetta allt saman þar sem að ég er að fara í klippingu kl. 14. ;) Hlakka svo mikið til enda er ég ekki búin að fara í klippingu og litun síðan í ókt. þannig að það er kominn tími til. 8) Ég er að pæla í að lita það bara vel brúnt og bara rétt svo klippa það. Domino greiðslan verður að bíða til betri tíma... Ég er ekki alveg að tíma því að klippa allt hárið mitt... :$ ég er bara wimp... en það verður bara að hafa það... Hmm, hvað meira... Ég fór á Scary movie 4 um daginn og ég er nú mikið fan af þeim myndum, en ég var ekki alveg nógu sátt með þessa.. Þetta er nú mynd sem er að gera grín af öðrum myndum, helst hryllingsmyndum og mér finnst alltaf jafn ótrúlegt að ég næ alltaf að verða hrædd á Scary movie... Eins og síðast, það var verið að gera grín af Grugde og shit maður, mér brá svo mikið að það er ekki fynið. Leið eins og asna þar sem allir aðrir hlógu að þessu atriði á meðan að ég hélt fyrir augun í von um að þetta væri bráðum búið... 8| Ég er auli, I know!!! hehe... Ég skal bara skella inn mynd af þessu fucking barni... See for your self!!!

Sko bara!!! ehehe, ég er hætt!!

En já, ég held bara að þetta sé gott í bili;)

Kv. Unnur, the biggest wimp in the world!!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 21:40:54 / Unnur

Gleðilegt sumar:)

Halló Halló everybody...

Jájá, þá er bara komið sumar - thank god!!!! Ég er nú bara mjög svo sátt með það að það sé að koma sumar því að í mínum augum þá er það ekki alveg komið.. :S En vonandi á næstunni.

Voðalega er ég búin að vera löt að blogga...Svona er þetta bara þegar ég hef ekkert sérstakt að segja... En já, hvað er að frétta? Ég er bara að vinna á fullu í leikskólanum og já, mér finnst þetta ennþá skemmtilegt. Hmm, ég er ekki búin að djamma mikið... Þórunn krúttið mitt er byrjuð í prófum og ég sé hana ekki eins mikið og ég mundi vilja en hún er samt alltaf til í smá svona kúr heimsókn þar sem að við liggjum uppí rúmi og tölum um allt mögulegt sem er búið að gerast:) Voðalega þægilegt. Svo fórum við bara í ljós í dag og það mætti halda að hún Þórunn sé búin að vera á spáni í 3 vikur hún er með svo mikið far... Damn it, ég fæ bara fleiri freknur... En það verður bara að hafa það!! Hmm, ég er byrjuð aftur hjá eimskip og er að vinna þar alltaf á mánudögum eftir vinnuna í leikskólanum. Svo er bara páskafríið búið og ég fékk eitt mjög svo glæsilegt páskaegg frá ömmu og afa í Kópavogi. Og svo gerði ég ekki neitt annað en að kúra um páskana eins og maður á að gera.

En já, ég er að pæla að hafa þetta bara gott í bili!! :) Reyni að vera með eitthvað skemmtilegra á næstunni:$

Núna verður ekkert meira svona í bili... :cry:

Kv. Unnur


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 23:55:23 / Unnur

Bloggedíblogg?

Jájá, það er nú bara þannig,

Ég er ekki búin að blogga í ár og aldir, en ég er nú bara ekki búin að hafa neitt spennandi að segja, ég skal bara viðurkenna það og vera sú fyrsta til þess að segja það. Eins og nokkrir vita þá var ég vel veik hérna fyrir svona viku, náði mér fyrst í hósta, svo í sýkingu í eyra, svo í sýkingu í vinstra lunga og svo the cherry on the top lungnabólgu. Það gerist bara ekki betra. Svona er maður alltaf heppin og ég er bara búin að komast að því að það hlýtur bara að vera að ég er jinxed. En já, ég segi bara fuck u :!: Nei, okay, sorry ;)

Núna er maður loksins farin að vinna aftur. Var að vinna alla síðustu viku og það var ekki smá gaman að heyra, Unnur er komin Unnur er komin og ég var bara knúsuð fram og tilbaka :haha: Mér finnst líka tíminn alltaf vera fljótari og fljótari að líða. En ég meina, það er náttúrulega bara great. Svo er mín bara byrjuð enn og aftur hjá Eimskip... Ég skal bara segja það að ég átti ekki von á því að það mundi gerast, en ég meina... Ég er bara svona aukamanneskja eins og Ægir kallaði mig og er ég bara að vinna á mánudögum eftir leikskólann, og svo er ég bara að vinna auka þegar það vantar og þegar ég get. En þetta er fínn aukapeningur og þá má ég líka fara með á vinnudjömm, sem var eitthvað sem ég saknaði. Svo er líka mikið af sama fólkinu að fara vinna þarna aftur. Ég er bara sátt með það;) það er bara gaman.

Já, svo er ég búin að horfa enn og aftur á Domino, og já ég veit Þórunn mín að ég er obsessed með Domino, en ég hætti að tala um Domino þegar þú hættir að tala um Finding Nemo:!: (hehe, segi svona) ;) Ég mæli bara með þessari mynd ef þú ert ekki búin að sjá hana. Keira Knightley er bara flott í henni og ég held að það sé bara málið að skella inn mynd af the bounty-hunter:)

En já, hérna er hún. Svo er ég líka að pæla að breyta könnununi í þetta: Ég er búin að vera mikið að pæla að klippa á mér hárið, og mér finnst hárgreiðslan sem Keira er með sem Domino ógeðslega flott, en ég veit ekki hvort að ég tými að taka allt hárið mitt sem nær núna langt niður á bak og klippa það svona rosalega stutt...Endilega tjáið ykkur um þetta svo að ég viti kannski eitthvað hvað ykkur mundi finnast um þessa klippingu, set mynd af henni hérna:)

  

Ég vona að þetta sé nóg af myndum fyrir ykkur:) En þetta er nóg í bili frá mér:) Endilega takið þátt í könnun:)

Kv. Unnur


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 23:44:14 / Unnur

Gus Gus 25. mars - I like it - a lot!!

Halló halló,

djöfull er ég pirruð núna....ég var búin að skrifa geggjað mikið, en svo þurfti ég eitthvað að fikta og það datt allt út!!! DJÖFULL!!! En já, ég held að ég sé búin að jafna mig...og ætla þá bara að byrja...again... :D Já, ég er bara lasin hérna heima..ég held að eina veikin sem ég á eftir að fá er svarti dauði eða eitthvað því um líkt...Ég vill bara vara ykkur við að þegar (ef) fuglaflensan kemur til Íslands, ekki koma nálægt mér þar sem að ég er greinilega mjög góð í því að næla mér í sjúkdóma... Það nýjasta nýja er það að ég er komin með sýkingu í eyrað...Djöfullinn hafi það...:!::!: Þannig að núna er maður bara á pensilíni og læti. Ég ákvað nú samt að fara í vinnuna í dag þar sem að ég var ekki svo slæm í morgun, en neinei, mín fór heim eftir einn og hálfann klukkutíma. Ég var ekki alveg að meika það að ég heyrði ekki hvað krakkarnir voru að segja og svo þegar að þau voru að öskra eins og þau eru mjög góð í að gera þá var ég að verða geiðveik, þannig að ég fór heim og tók verkjatöflur og steinsofnaði og vaknaði við frekar skrýtna símhringinu frá pabba mínum þar sem að hann var að biðja mig um kennitöluna mína þar sem að hann er að gera líftrygginuna sína ef að hann skildi nú detta dauður niður, og ég alveg úturdópuð fór bara að hlægja...Fannst þetta eitthvað svo fyndið...:S Góð dóttir;)

Svo í gær var bara horft á nýju uppáhaldsseríuna, Prison Break... Ég held að mér finnist hún góð því að hann Wentwoth Miller (yngri bróðirinn, Scofield) er svo ógeðslega sætur!!! Hann er alltaf ný rakaður, þótt að hann sé í fangelsi, en mér er alveg sama þótt að það sé eitthvað einkennilegt, hann er svo ógeðslega sætur....Ég ætla að vona að ég sé ekki ein um það mál...Mér finnst nógu erfitt að vera greinilega sú eina sem er hot fyrir Luis Figo - kötturinn á fótbolta vellinum.. ;) Frænku minni fannst voðalega skrýtið að ég vissi hver Luis Figo væri...Ég horfi alveg á fótbolta.... Þegar Figo og Tottí eru að spila:D Annars er þetta ekki skemmtilegt, ef að það er enginn sætur gaur til að horfa á.:haha: Þið verðið náttúrulega að gera ykkur grein fyrir því að ég er 20 ára kvennmaður...:lol: Ég er bara að pæla að heiðra þessum glæsilegu karlmönnum með því að setja myndir af þeim inn á þessa glæsilegu síðu mína:) HAHAHA.

Ég mundi ekki segja nei við þessa gaura:)

Svo er ég að pæla að segja ykkur frá titilinum á þessari færslu. Ég var að komast að því að Gus Gus eru að fara halda tónleika 25. mars á NASA. Það er 1500,- inn en 1000,- fyrir þá sem eru með svarta kortið. Húsið opnar 23:00 og þetta er miðnæturtónleikar. Seinast þegar að ég sá Gus Gus var á Airwaves og þau voru frábær!!! Ég mæli eindregið með þessum tónleikum ef að þú hefur gaman af frábæri tónlist eða bara villt skemmta þér með skemmtilegu fólki. Mér finnst þetta alls ekki mikill peningur fyrir þessa glæsilegu hjómsveit og það er "bara" 20 ára aldurstakmark (thank god). Ég hringdi í hana Þórunni mína og "grátbað" hana að koma með mér. Hún mátti velja á milli Ampop eða Gus Gus eða bara bæði, og ég var bara mjög sdátt þegar hún sagði mér að hún mundi koma með mér á Gus Gus, no pro. :D Takk elskan!! Hlakka ekkert smá til! :haha: En ég verð samt að segja, ef að þetta væri fullkominn heimur þá værum við Wentworth og Figo að fara saman á tónleikana til þess að komast að því hvort að það væri nú ekki smá zsa zsa zsu á milli okkar;) Þeir sem eru miklir fans Sex and the City vita um hvað ég er að tala, þar sem að ég er að vera búin að horfa á alla seríuna, again... Ég mundi nú ekki hafa neitt á móti því að þær mundi halda áfram að gera þessa ógeðslega skemmtilegu og bráðnauðsynlegu seríu... Ég er viss um það að hún Aðalbjörg mín sé nokkuð sammála mér í þessu máli. ;)

Svo eru Aðalbjörg og Þórdís að fara að skella sér til Californíu á deit með Ryan úr O.C :) Kannski að þið látið Seth fá nr. hjá mér...Ég held að það sé komin tími til að við skellum okkur á deit!! 8) CALL ME!!! ;) Ég fór í smá heimsókn uppí bíó til að hitta gömlu vaktina mína og þegar að ég kom upp sá ég Bigga dyravörð sem var fljótur að segja mér það að hann væri nýbúin að dreyma um mig...Hmm, ég varð náttúrulega forvitin og spurði hvað ég hefði verið að gera, þá fékk ég að vita það að við vorum niðri í bæ og ég var eitthvað að nöldra í honum...Hmm, ég kannast við þetta því að síðast þegar að ég hitti Bigga niðri í bæ þá var ég einmitt að nöldra í honum um það hvað hann væri með lélegan smekk á kvennmönnum....:S Verður að fara að gera eitthvað í þessu!!! Kannski var þetta ekki draumur heldur eitthvað weird Deja Vu...? Who knows? Svo var ég einmitt spurð hvort að ég væri ekki komin með gaur, eins og allur heimurinn snúist um það að eiga kærasta, þá kom ég bara með mjög gott svar að mínu mati - Hver þarf kærasta þegar að ég hef tvo stráka sem vilja kúra með mér á hverjum degi:) Reyndar eru þeir bara 2 ára, en kúr er kúr! Haha. Það nýjasta er einmitt það að það er rosalega gaman að horfa á bílinn minn út um gluggann á klósettinu og svo er Bragi farinn að verða bara reiður ef að það ætlar einhver annar að klæða hann í útigallann en ég. Eina sem má gera það er ég...Kannski er ég bara svona góð í þessu8| hver veit...? En allavegana, ég held að þetta sé bara mjög glæsilegt í bili. Vona að það sé eitthvað vit í þessu. :D

Bless bless í bili:)

Kv. Unnur


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 17:53:16 / Unnur

Er ekki málið að blogga?

Jæja, mér finnst vera komin timi til að tjá mig aðeins, enda er það voðalega gott, sérstaklega fyrir fólk eins og mig sem er mikip fyrir að tjá sig:) HAHA, segi svona :lol:

Hvað er að frétta? Ekki mikið....ég er bara búin að vera lasin núna síðustu þrjá daga....Er með þessa glæsilegu hálsbólgu sem að ég fæ á hverju ári...Hún er það slæm að ég er að drepast í maganum...eins og ég sé búin að vera gera einhverjar svakalegar magaæfingar....Er þetta það nýja til þess að þurfa ekki að stunda líkamsrækt....ná sér bara í góða ælupest þannig að maður vilji ekki borða neitt nema ís og svo hálsbólgu líka til að æfa magavöðvana sem eru þarna inni einhvernstaðar:S U tell me... Hmmm....ég fór í bíó um daginn með henni Rakeli minni að sjá Casanova...ég verð bara að segja að ég féll alveg fyrir henni, skemmtileg rómantísk mynd og það skaðar ekki að þessi hérna var í aðalhlutverki sem Casanova

 

Já, hann er pínu lítið sætur, er það ekki?

Já, þetta er barasta fín mynd...samt kannski aðeins meira fyrir kvennkynið....en það er bara gott mál finnst mér...Karlarnir eru nýbúinir að fá Doom á DVD, hahaha, gott á ykkur fyrir að hafa lélegan smekk á bíómyndum og einnig tölvuleikjum....

Svo er ég líka að pæla að gefa ykkur svarið á könnunini sem er búin að vera í smá tíma núna... Spurningin er sú: Hvaða ár dó Marilyn Monroe? Ég skal segja ykkur það að þessi glæsilega kona dó því miður árið 1962...og hún var fædd 1926....Hún var fundin inni í herberginu sínu og er talið að hún hafi framið sjálfsmorð...Tekið of stórann skammt af pillum... En það sem er talið skrýtið er það að það var ekkert sjálfsmorðsbréf, það var of mikið af tómum pillu-glösum  og hún var nakin í rúminu sínu og herbergið hennar var læst. Hvar var Grissom og liðið hans frá CSI á þessum tíma ha? Nei, eins og þeir sem þekkja mig vel og mikið þá er ég alveg rosalegt Marilyn fan og á mikið af efni um hana og hef gert ritgerð og læti um hana:) En já, ég er að pæla að hætta í bili og skella inn mynd af idolinu mínu:) Bless í bili:)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 00:37:53 / Unnur

Febrúar að verða búin

Helvítis andskotans rugl - var sem sagt búin að skrifa alveg full og svo bara datt það út... hvað á svona rugl að þýða? hmm? já, en allavegana þá er önnur vinnu vika búin, önnur djamm helgi eða það að bíða í röð til þess að reyna að djamma búin og svo er önnur kúruhelgi búin sem er ekki alveg jafn gott og að hitt sé búið...það er eitthvað svo gott að kúra og virkilega ekki gera neitt annað, kúríkúr:haha: Já, ég held virkilega að ég sé aðal kúrari Íslands:) haha, en já á föstudaginn þá var ég bara róleg, hitti Rakeli frænku mína smá eftir skólaball og eftir það fór ég heim að horfa á DVD þar sem að hann afi var búin að koma heim með myndir og ég horfði á nýja mynd sem heitir "This girls life" og það er ný leikkona sem er í aðalhlutverki og hún er alveg ótrúlega frábær - hún heitir Juliette Marquis og er frá Úkraínu...Þetta er alveg ótrúlega falleg ung kona - set hérna mynd af henni -

Mæli með þessari mynd;)

Svo á laugardeginum eftir góðann dag af kúri þá fór ég í partý með Þórunni og seinna kom Tinna og eftir það var farið niður í bæ þar sem að ég fékk smá brjálæðiskast yfir þessu VIP rugli á skemmtistöðum og því að það sé 22 inn sumstaðar sem að ég skil ekki alveg....hvað gerist þegar maður er 22 ára? hmm, já...ég má þá loksins fara inn á Hressó..ég samt skil þetta ekki alveg þar sem að ég labba alltaf bara inn á Hressó...en ég held að dyravörðurinn var bara orðin þreyttur á því hvað við Þórunn vorum mikið að rugla í röðinni, en ég meina come on... En allavegana, eftir það þá fórum við í smá flakk og eftir 11efuna þá ákváðum við að fara á Hverfis, ekki spryrja afhverju - þar var röð eins og alltaf...Til að byrja með þá hreyfðist hún alveg og eftir svona 10 mín þá vorum við komnar fremst, en ekki nóg með það...við biðum þar líka í 40 mín...án þess að hreyfast...Dyravörðurinn sagði það að það væri svo fullt, en samt var fólk sem var búin að bíða í 5 sec í VIP röðinni að labba inn endalaus...Ég náttúrulega misti mig í lokinn og ákvað að ræða aðeins við þennan helvítis dyravörð, hann sagði mér að tala við eigandann, en þegar að hann komst að því að ég þekki hann þá hafði hann ekkert meira að segja...Við enduðum á því að fara úr röðinni, enda var ég ekki að meika það að bíða í aðra 5 daga til að reyna að komast inn....:$ En ég skil samt ekki, afhverju er VIP á Íslandi...erum við ekki öll VIP? Hvað hafa þau gert sem að gerir það að verkum að þau eigi frekar að fara inn heldur en ég? Ha? Ég held að það virki þannig að - Þú þarft að þekkja einhvern, sem þekkir einhvern sem reið einhverjum...Svona er það bara hérna8| Aular, haha.  En eftir þetta þá fórum við á BSÍ að borða, þar var engin VIP röð þannig að við fengum afgreiðslu:) haha, voðalega bitur yfir þessu máli eitthvað:S Þannig að þetta var svona mín helgi:haha:

Svo er það bara afmælið hjá Þórunni - The Kind á laugardaginn og þá verður sko LOKSINS, LOKSINS drukkið og djammað og öskrað á fleiri dyraverði ef að ég þekki mig rétt:| Það verður geggjað stuð, enda eru ekki The Kind og fjólubláa kindin oft fullar á sama tíma, þannig að þetta verður skrautlegt. Svo var ég eitthvað að vesenast á B2.is og þar sá ég að hún Silvía okkar Nótt er komin á Wikipedia.org, sem að mér finnst alveg ótrúlega fyndið...Venjulega nota ég þessa síðu í það að finna upplýsingar um ritgerðarefni, en það sýnir mér bara að Silvía Nótt er ritgerðarefni:) GLÆSILEGT, ég sætti mig alveg við það að hún sé VIP ef að einhver á það skilið:) Svo var ég líka að heyra það að hún Silvía sé kynþokkafyllsta kona Íslands en hún Ágústa Eva (sem er Silvía Nótt) er í 4 sæta...Hvernig er þetta hægt? Þetta er sama manneskjan, en ég segi bara til hamingju með það að vera á 2 stöðum á þessu lista Ágústa...þetta hefur ekki gerst fyrr....

Og í tilefni þess þá finnst mér að þið eigið að kíkja á þetta: http://b2.is/?sida=tengill&id=147123 HAHA, Alltaf jafn gaman að horfa á þetta:)

En ég held að þetta sé meira en nóg í bili.;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3